Hestamannafélagið Grani

Húsavík

17.01.2012 12:16

Aðalfundur Grána

Aðalfundur Grána ehf. Laugardaginn 14. Janúar 2012

Þorgrímur setti fundinn og skipaði Stefán Haraldsson fundarstjóra, ritari er Berglind Sigurðardóttir.

1.       Skýrsla stjórnar

Reiðhallarbyggingin er kominn á síðasta fjórðunginn. Reiðvöllurinn er tilbúin til notkunar en hann er ekki kominn í endanlega hæð enda eiga menn eftir að sjá hvernig undirlag mönnum líst best á.   Verktakinn mun ljúka sínum hluta á næstu dögum og er hann núna að þétta húsið.  Þá á eftir að skipta um hurð sem er austan á húsinu og setja breiðari hurð í staðinn.  Einhver bið verður á að aðstaða fyrir fólk verði tilbúin.  Gamall Granafélagi, Ingólfur Arnarson á Neskaupstað, ætlar að styrkja sína menn rausnarlega með því að flota gólfið og mála kaffistofuna.  Hann reiknar með að komast í það nú á næstu mánuðum.  Ljóst er að peningamál munu ráð miklu um það hvað verður hægt að gera í húsinu á næstunni.  Til stendur að afgreiða nú á fundinum þau mál sem þarf til að hægt sé að opna fyrir notkun á húsinu. 

2.       Reikningar 

Eftir yfirferð reikninga kom í ljós að reikningsárið 2009 var eftir og aðalfundir árið 2010 aldrei haldinn.  Skýrist það vegna þess að það varð lengri bið á framkvæmdum en menn áttu von á svo ekkert var gert árið 2009.  Reynt verður að halda aðalfund 2012 nú á vordögum svo fundir verði komnir á rétt ról.  Reikningar samþykktir einróma.

3.       Lagabreytingar

Lögð er fram tillaga um breytingar á 16. grein laga félagsins sem einfaldar greinina og hljóðar í stuttu máli þannig að í stjórn Grána ehf. sitji þrír en ekki einn til fimm eins og var.  Rætt var um hvort aðalfundir Grana og Þjálfa eða aðalfundur Grána ehf.  kjósi stjórn.  Ljóst er að það er aðalfundur Grána ehf. sem kýs stjórn en hestamannafélögin geta tilnefnt fulltrúa sem bjóða sig fram í stjórn.  Lagabreytingin var samþykkt einróma.

4.       Kosningar

Kjósa þarf stjórn Grána ehf. og endurskoðendur. Lögð er fram tillaga um óbreytta stjórn og endurskoðendur en tvær nýir varamenn koma inn.  Það eru Einar Víðir Einarsson og Bjarki Helgason.

5.       Önnur mál

-          Stjórn leggur fram tillögu um umgengisreglur fyrir reiðhöllina í 17 liðum.  Lagðar voru fram tvær breytingatillögur.  Þá var lögð fram tillaga að gjaldskrá.  Lögð var fram tillaga um að komið væri til móts við þá sem búa lengra í burtu, t.d. með því að þeir borguðu lægri gjöld í reiðhöllina.  Ákveðið var að fresta þeirri hugmynd en ákveðið að kjósa um gjaldskrána eins og hún er.  Umgengnisreglur með breytingum og gjaldskrá óbreytt voru samþykkt einróma.  Bætt var við umgengnisreglurnar að ekki skyldu vera fleiri en fimm inná vellinum í einu og ekki lengur en 20 mín. ef aðrir bíða.  Einnig að börn skyldi vera í fylgd fullorðins korthafa.

-          Húsvörður eða húsverðir.  Samúel hefur samþykkt að vera húsvörður en talið er skynsamlegt að annar verði með honum og samþykkt að stjórn fari í málið.

-          Kynnt hugmynd að dagskrá í reiðhöllinni þar sem leitast er við að hafa seinni part og kvöld alla daga laus fyrir hestamenn.  Önnur starfsemi væri helst sett á einn dag vikunnar.  Umræður um opna daga eða einhvern tíma þar sem ókeypis væri í reiðhöllina fyrir alla.  Toggi lagði fram tillögu um að ókeypis yrði í reiðhöllina nú í tvær vikur.  Berglind lagði fram tillögu um að nú næstu vikur væri ákveðinn seinni partur eða kvöld þar væri ákveðinn opinn tími.

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 48
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 26901
Samtals gestir: 9024
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:30:12

Vafraðu um

Tenglar