|
Hestamannafélagið Grani Húsavík |
|
18.04.2012 09:35Reiðnámskeið í Saltvík4 vikna reiðnámskeið hefst í næstu viku Meira vanir verða á fimmtudögum frá 16.30-18.30, kennari: Ingó Minna vanir verða á miðvikudögum frá 16.30-18.30, kennari: Karin Verð: 10.000 Skráning og nánari upplýsingar gefur Elsa í síma 864-2062 og email: elsa@saltvik.is Skrifað af SJ 11.04.2012 22:43Formleg opnun reiðhallarinnarJæja nú er komið að því Opnunarhátíð nýju reiðhallar Grána í Saltvík verður sunnudaginn 15. apríl klukkan 14:00 og verður dagskráin eftirfarandi 2. Ræður og opnun 3. Krakkahópur yngri hópur 4. Gangtegundir og litir 5. Gæðingasýning Grana Hlé: Kaffisala 6. Krakkahópur eldri hópur 7. Gæðingasýning Þjálfa 8. Fjölskylduatriði 9. Fólki boðið á bak Endilega fjölmennum og eigum skemmtilegan dag saman Nefndin Skrifað af SJ 09.04.2012 20:37Opnunarhátíð og æfingarÞeir sem eru komnir með hlutverk í opnunarhátíðinni eru beðnir um að mæta í reiðhölina á morgun þriðjudag klukkan 17:30. Einnig viljum við gjarnan fá fleiri í lið með okkur og biðjum við þá að mæta á sama tíma :) Skrifað af SJ 25.03.2012 20:21Vígsla á reiðhöllinniKæru Grana- og Þjálfafélagar Nú er búið að ákveða dag fyrir vígslu reiðhallarinnar, þannig að nú vantar fólk á öllum aldri til þess að taka að sér hin ýmsu verkefni. Við erum að leita af fólki bæði til að taka þátt í sýningunni á hestum og einnig við að aðstoða og undirbúa hana. Þeir sem hafa áhuga að taka þátt endilega mætið í reiðhöllina á þriðjudaginn 27. mars klukkan 20:00 Hlökkum til að sjá sem flesta Vígslunefnd Skrifað af SJ 14.03.2012 09:22Reiðhöllin í útleiguA.t.h að reiðhöllin okkar verður í útleigu dagana 21 og 28. mars og 11. apríl frá klukkan 20:00 - 22:00 :) 23.02.2012 09:55ÞorrahittingurÞorrablótshittingur :) Hittingur á Kaldbakstjörn klukkan 13:00 á laugardaginn ef ísinn leyfir, annars hittumst við, við nýju fínu reiðhöllina okkar og tökum léttan hring saman :) 13.02.2012 22:08Knapamerki 1 byjaðJæja þá er Knapamerki 1 farið af stað. Við erum mjög ánægð með þátttökuna, en alls eru skráðir 11 manns á öllum aldri sem við skiptum í tvo hópa. Enn er samt eitt laust pláss í fyrri hópnum sem er klukkan 17:00 á þriðjudögum. Fyrsti bóklegi tíminn var í kvöld hjá Oddný Láru og voru allir mjög ánægðir eftir þann tíma, svo þetta byrjar allt vel :) Við vorum svo heppin að fá Þekkingarsetrið lánað fyrir bóklega námið en þar er frábær aðstaða fyrir svona námskeið. Á morgun verður svo fyrsti verklegi tíminn hjá Helga í nýju reiðhöllinni okkar. Æskulýðsnefnd :)
Skrifað af sj 13.02.2012 13:09Reiðhöllin lokuðReiðhöllin verður lokuð á þriðjudögum frá klukkan 17:00 - 19:00 næstu 6-8 vikurnar vegna knapamerkjakennslu. Skrifað af SJ 09.02.2012 22:53Breytt verð og tvö pláss lausEnn eru tvö pláss laus á knapamerkjanámskeið 1. Sem kennt verður á mánudögum klukkan 18 í þekkingarsetrinu og á þriðjudögum í nýju reiðhöllinni. Laust er í hópinn klukkan 18:00. VERÐ 20.000 Þ Ef þið hafið einhverjar spurningar þá ekki hika við að hafa samband;) Svanhildur 699-5775 26.01.2012 19:45ATH-Reiðhöllin verður lökuðLaugardaginn, 28.janúar 2012, verður reiðhöllin lokuð vegna útleigu! Stjörn Grána 25.01.2012 17:23Hestadagar í RvkHestadagar í Reykjavík Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars - 1. apríl næstkomandi. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll. Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum. Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman. Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: "Ístölt - þeir allra sterkustu". Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni. Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl. Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum. Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á www.icelandichorsefestival.is Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!
Skrifað af SJ
|
Vafraðu umEldra efni Tenglar |